Það var einstök hátíð í Minna-Knarrarneskirkju á Vatnsleysuströnd þann 19. júní 2025, þegar nýr fjallkonukyrtill var formlega afhentur fyrir Íslendingadaginn í Gimli, Kanada. Tilefnið var tvíþætt og táknrænt: Annars vegar afhendingin sjálf, sem er hluti af hátíðarhöldum vegna 150 ára afmælis stofnunar Nýja Íslands á Manitoba í sumar og hins vegar minning um þann merka dag fyrir 110 árum þegar konur á Íslandi, eldri en fertugt, hlutu fyrst kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.

Kyrtillinn er verk 19 kvenna sem komu saman á vegum Annríkis – Þjóðbúningar og skart og lögðu hjarta, tíma og kunnáttu í að skapa nýjan búning fyrir fjallkonuna sem verður heiðruð í Gimli síðar í sumar. Athöfnin var virðuleg og hlý, þar sem Sigrún Ásmundsson, forseti Íslendingadagsins, tók á móti kyrtlinum og með gleði og þakklæti viðtöku.
Við í Kyrtil hópnum erum ákaflega stolt af því að hafa lagt okkar af mörkum til að tengja saman konur yfir hafið – konur með rætur, sögu og menningu sem lifir áfram í klæðnaði, handverki og samveru.

Með hjartans þökkum til allra sem gerðu þennan dag svo eftirminnilegan.
Sigurbjörg Fríða Ólafsdóttir
Kynningarfulltrúi